F-Droid er uppsetjanlegt safn frjálsra forrita fyrir Android. Sjálft F-Droid forritið auðveldar að skoða, setja upp og halda utan um uppfærslur á tækinu þínu. Það tengist við hvert það hugbúnaðarsafn sem er samhæfanlegt við F-Droid. Sjálfgefna hugbúnaðarsafnið er hýst á f-droid.org, sem inniheldur einungis hreinan opinn og frjálsan hugbúnað. Sjálft Android-stýrikerfið er opið í þeim skilningi að þér er frjálst að setja upp APK-pakka hvaðan sem þér sýnist, en eftir sem áður eru margar góðar ástæður fyrir því að nota F-Droid fyrir almenna hugbúnaðarstjórnun: * Fáðu tilkynningar þegar uppfærslur eru gefnar út * Mögulegt er að sækja og setja uppfærslur upp sjálfvirkt * Haltu utan um eldri útgáfur og prófunarútgáfur * Síaðu út forrit sem ekki eru samhæfð tækinu þínu * Finndu forrit eftir flokkum og leitanlegum lýsingum * Smelltu á slóðir á styrki til útgefenda, grunnkóða o.s.frv. * Tryggðu öryggið með því að athuga undirritanir hugbúnaðarsafna og gátsummur APK-pakka